{"product_id":"bulldog-adult-12kg-1","title":"Bulldog Adult","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eÞurrfóður fyrir enska Bolabíta eldri en 12 mánaða\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eBætt melting\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eStuðlar að bættri meltingu með góðgerlafæðu (MOS). Vinnur gegn of mikilli gerjun í þörmum og dregur þannig úr vindgangi og illa lyktandi hægðum - sem eru frábærar fréttir fyrir eigendur enskra Bolabíta!\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eViðheldur og styrkir húð og feld\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eStyrkir náttúrulegar varnir húðarinnar með fjölómettuðum ómega-3 fitusýrum (EPA og DHA) en þær leika lykilhlutverk í öllum frumuhimnum líkamans - húð verður sterkari og feldurinn glansandi fallegur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eHeilbrigðir liðir\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eInniheldur bæði glúkósamín og kondróítin en bæði þessi efni leika lykil hlutverk í heilbrigðum liðum. Auk þess er í fóðrinu ómega-3 fitusýrur sem draga úr bólgum sem oft myndast í liðum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eFóðurkúlurnar\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKúlurnar eru þannig að stærð og lögun að það er auðveldara fyrir hundinn að ná þeim upp en flatnefja tegundir eiga oft í erfiðleikum með að koma fóðurkúlum upp í munninn. Sömuleiðis hvetur stærðin og lögunin Bolabítinn til að tyggja og hafa þannig eðlilega meltingu þannig að það komi ekki of mikið magn fóðurs í magann of hratt - á þann hátt verður uppþemba í maga ólíklegri\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eTannheilsa\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLögun fóðurkúlnana dregur auk þess úr tannsteinsmyndun því þær hvetja hundinn til að tyggja og því fá tennurnar ákveðna \"burstun\" frá fóðurkúlunum. Ennfremur er í fóðrinu kalkbindandi efni en kalk í munnvatni er einn stærsti þátturinn í myndun tannsteins.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eNæringargildi\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePrótein: 24% - Trefjar: 2.8% - Fita: 14%.\u003c\/p\u003e","brand":"Royal Canin","offers":[{"title":"12kg","offer_id":45332255342626,"sku":"R255010","price":22890.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0808\/3072\/6178\/files\/Untitled-1_5000x_6c7bdb21-23b3-44ed-b26b-b1bb1fc5e436.webp?v=1777900589","url":"https:\/\/www.hundahornid.is\/pl\/products\/bulldog-adult-12kg-1","provider":"Hundahornið","version":"1.0","type":"link"}