Hundahornið 🐾
Hundahornið er verslun og hundasnyrtistofa staðsett á Rifi á Snæfellsnesi, þar sem hundar fá einstaklingsmiðaða umönnun í öruggu og rólegu umhverfi. Eigandi og rekstraraðili er menntaður dýrahjúkrunarfræðingur og hundasnyrtir með mikla reynslu af umönnun dýra og brennandi áhuga á velferð þeirra. Markmiðið er að veita faglega, hlýja og persónulega þjónustu þar sem vellíðan og öryggi hvers hunds er ávallt í forgangi.
Hundasnyrtistofa
Markmið Hundahornsins er að veita faglega þjónustu sem byggir á virðingu, þolinmæði og trausti – bæði gagnvart hundum og eigendum þeirra. Hver hundur er einstakur, og því er þjónustan alltaf sniðin að þörfum hans. Í Hundahorninu eru aðeins notaðar vandaðar og öruggar vörur, valdar með tilliti til húðar, felds og heilsu hundsins.
Sérstök áhersla er lögð á að skapa rólegt andrúmsloft þar sem hundurinn fær að finna sig öruggan og líða vel allan tímann. Sem dýrahjúkrunarfræðingur legg ég einnig mikla áherslu á heilsu og vellíðan hundsins, og veiti eigendum ráðgjöf varðandi umhirðu og heilsu.
Verslun
Í verslun og vefverslun Hundahornsins finnur þú hágæða vörur og vörumerki sem uppfylla háar kröfur um gæði, þægindi og öryggi. Til að mynda, Royal Canin, Claud 7, Bugalugs, Voskes, Harley&Cho og mörg fleiri
